24.1.2007 | 11:37
Vesturbærinn
Ég er staddur í sturtuklefa í sundlaug Vesturbæjar ásamt Agnari. Þetta er sæmilega stór klefi með mörgum sturtum. á móti mér eru 4-5 lausar sturtur. Við hlið Agnars eru 3 lausar og þær eru með veggjum á milli, ekki hjá mér. Maður kemur inn og velur sér sturtuna sem er við hliðina á mér. Þetta þótti mér skondið. Af öllum sturtunum velur hann að vera í kremju við hliðina á mér! Þetta er eins og að velja sér pissuskálina við hliðina á eina manninum sem er alveg úti í horni, það gerir það enginn. Það er margt undarlegt fólk sme liggur leið sína í Vesturbæjarlaugina. Í pottunum var einnig maður sem stundi mikinn þegar hann kom ofaní pottinn og ég átti erfitt með að fela kátínu mína, svo erfitt að Agnar dró mig í næsta pott. Einnig var þarna kona sem vildi tala við okkur um Vesturbæinn og son hennar sem er sundkennari. Indælasta kona.
Og í lokin ---- Hvaðan er þetta kvót? "You're gonna eat lightnin' and you're gonna crap thunder!"
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 53
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Tónlist
Tónlist
-
Q-Lazzarus - Silence of the Lambs - Goodbye Horses
Frábært lag, er í Silence of the Lambs og Clerks 2
-
The Go! Team - Thunder Lightning Strike - Ladyflash
Frábært sound, hresst og ferskt
-
Jack Johnson - Sing-A-Longs & Lullabies for the Film Curious George - Upside Down
Reddar manni í próflestri
Athugasemdir
Eitt augnablik sá ég ykkur fyrir mér í speedo/þvengnum sem voruð í Balkan2006 og báruð ykkur svo tignarlega í.
Magnús Már Guðmundsson, 24.1.2007 kl. 15:03
Já Maggi ertu ekki að tala um myndirnar sem að Aggi var svo glaður með að hann sendi þær inn á beygla.is?
Eva Kamilla Einarsdóttir, 24.1.2007 kl. 18:39
interesting....very interesting....
btw, kvótið er úr klassísku myndinni "Rocky" með Sylvester Stallone !
Hallbjörn Sigurður Guðjónsson, 24.1.2007 kl. 22:41
Þetta var frekar súrt móment, get ekki sagt annað. En hey, þú ert sexí gæji og kallinn var bara að recogniz-a það!
Agnar Freyr Helgason, 25.1.2007 kl. 11:35
eins og aggi segir, þú ert bara svona sætur elskan =) (kærastan)
Ásta Dan (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.