Til hamingju!

Til hamingju Ísland því ég blogga hér! Ég er fæddur til að skrif'etta, posta í hel!

Já, þá er ég mættur hér í þetta nýja ferska blogg.is dæmi, alltaf gaman að gera nýtt blogg. Svo kannski endist þetta eitthvað lengur en áður *ræsk*. Ég get svekkt ykkur með því að ég er búinn í prófum og sit eirðarlaus fyrir framan skerminn og leita að næstu síðu til að dunda mér yfir. Búinn að skoða allt myspace og meira að segja búinn að lesa allt bloggið hans Agga... Ég öfunda ykkur svo mikið að vera í prófum! Ilmurinn að nýuppteknum bókum, nýteknar úr plastinu og frumlesnar fyrir próf. Niður af takka-pikki í Odda þar sem fólk er að gera eitthvað annað en læra í tölvunum sínum. Já, prófatíð er góssentíð bloggara, sannkölluð uppskeruhátið!

Skemmtið ykkur. 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agnar Freyr Helgason

This is not the way to make friends in this town, ese...

Agnar Freyr Helgason, 1.5.2006 kl. 17:09

2 Smámynd: Magnús Már Guðmundsson

Flottur!

Svo ef þér leiðist þá getur þú lesið "allar" færslunar mínar.

"Ilmurinn að nýuppteknum bókum, nýteknar úr plastinu og frumlesnar fyrir próf." er klárlega besta setningin þín í þessari jómfrúarfærslu þinni andris.blog.is

Magnús Már Guðmundsson, 1.5.2006 kl. 17:26

3 identicon

töff töff töff.. herru ég er vinur þinn... addaðu mér marr www.123.is/supergengid kv. Sigrún

Sigrún (IP-tala skráð) 1.5.2006 kl. 17:39

4 identicon

Mér finnst nú að ég eigi alveg heima á Röskvulistanum!!!

Sólrún (IP-tala skráð) 1.5.2006 kl. 18:17

5 identicon

Ég biðst forláts, þetta verður lagað undir eins!

Andri (IP-tala skráð) 1.5.2006 kl. 22:01

6 identicon

Glæsilegt blogg hjá þér ! Mér líst vel á upphafslínuna, alveg gelgjustælar í lagi ;)

Guðrún Lilja (IP-tala skráð) 1.5.2006 kl. 23:58

7 Smámynd: Þórir Hrafn Gunnarsson

Mér sýnist öll Röskvan bara byrjuð að blogga.

Strumpakveðjur :)

Þórir Hrafn Gunnarsson, 2.5.2006 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband