Hvað horfðir þú á?

Turtles, Transformers, My little Pony, Brakúla greifi. Hver er sú besta? Hérna eru nokkrar nostalgískar klippur úr þessum helstu (frábær tónlist):  Turtles Transformers Brakúla greifi My little pony Super Mario Show (Super cool rap!) Og einn gullmoli í lokin...

Ég er romm

You Are Rum
You're the life of the party, and a total flirt
You are also pretty picky about what you drink
Only the finest labels and best mixed cocktails will do
Except if you're dieting - then it's Diet Coke and Bacardi all the way

Síminn fundinn!

Ég tek gleði mína á ný! Ég hringdi á Kaffibarinn, nei enginn svona sími hér var sagt. Ég var desperate og fór á staðinn daginn eftir, neinei, er ekki síminn minn þar og gott betur. 2 eintök af svona síma á staðnum. Ekki hringja til að tékka á óskilamunum.

En eftir að hafa fundið símann þá er ég sko alveg til í gott djamm um helgina, hver er geim? 


Drykkja er böl

Ég var svooooo fullur á föstudaginn. Bið alla sem mig hittu endilega að segja mér frá því, því ég man ekki mikið eftir kvöldinu. Kom heim og var víst ælandi í tugi mínútna, man ekkert eftir hvert ég fór eftir að hafa hitt Sólveigu á Kaffibarnum.

En það súrasta er að ég týndi mínum kæra farsíma á milli Hverfisbarsins, Kaffibarsins og hvert sem ég fór svo þangað til ég druslaðist heim. Einhver?

Svo náttúrulega fussaði ég og sveiaði, afar þunnur, að ég myndi taka mér góða pásu í þessarri drykkju. Ég ætla allavega að skammta mér betur ölið. Spurning um að mæla vínið í centilítrum og meta svo áhrifin, gera þetta í svona 1-2 mánuði og fá úr því góða statistík, flæðirit og svona. Þá myndi ég vita hvað ég þarf marga desilítra af Vodka til að ná X miklum áhrifum 


Kosningar

Hvernig er ekki hægt að tala um sandkassapólitík þegar listafólk ákveðinnar fylkingar sem er í framboði í Stúdentaráðskosningum laumast um á kjörstað (listafólk er illa séð/bannað á kjörstað) og fela sig fyrir kjörstjórn? Einhverjir að reyna að vera með áróður á kjördag. Pakk!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband